Mynd dagsins - Raðhús rísa í Reitnum

Mynd dagsins var tekin í gær og sýnir m.a. raðhúsin tvö sem Faktabygg Ísland er að reisa Reitnum.

Mynd dagsins - Raðhús rísa í Reitnum
Mynd dagsins - - Lestrar 694

Mynd dagsins var tekin í gær og sýnir m.a. raðhúsin tvö sem Faktabygg Ísland er að reisa í Reitnum. 

Raðhúsin standa við Grundargarð og Ásgarðsveg og eru byggð í samstarfi við Búfesti sem er húsnæðissamvinnufélag.

Á vef Framsýnar sagði fyrir nokkru:

"Höfðavélar sáu um jarðvinnu og Fakta Bygg Ísland sér um að reisa húsin. Um er að ræða tvö 6 íbúða raðhús úr einingum sem koma frá Fakta Bygg í Noregi en Fakta Bygg á Íslandi er dótturfélag fyrirtækisins. Fakta Bygg á Íslandi er í eigu Húsvíkingana  Kristjáns Eymundssonar og Árna Grétars Árnasonar sem lengi hafa starfað og búið í Noregi. Aðaleigandi Fakta Bygg í Noregi er Kristján Eymundsson". 

Ljósmynd 640.is

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744