05. nóv
Mikill áhugi fyrir boccia hjá eldri MývetningumAlmennt - - Lestrar 474
Á Heilsueflandi degi í Skútustaða-hreppi um síðustu helgi var boðið upp á boccia-kennslu og æfingu fyrir eldri Mývetninga undir stjórn Egils Olgeirssonar frá bocciadeild Völsungs.
Á heimasíðu Skútustaðahrepps segi að gaman hefði verið að sjá hversu aðsókn var góð en kennslan fór fram í íþróttamiðstöðinni í Reykjahlíð.
Íþrótta- og umennafélagið Mývetningur gaf Félagi eldri Mývetninga glæsilegt boccia sett og er ætlunin að bjóða upp á skipulagðar æfingar í vetur ef áhugi verður fyrir hendi.
Hér má lesa meira um Heilsueflandi dag í Skútustaðahreppi sl. laugardag.