Markalaust jafntefli hjá stelpunum

Mærudagsboltinn byrjaði í gærkveldi þegar Völsungur tók á móti sameiginlegu liði Fjarðabyggðar, Hattar og Leiknis F. í 2. deild kvenna.

Markalaust jafntefli hjá stelpunum
Íþróttir - - Lestrar 550

Marta Sóley var valin maður leiksins.
Marta Sóley var valin maður leiksins.

Mærudagsboltinn byrjaði í gærkveldi þegar Völsungur tók á móti sameiginlegu liði Fjarðabyggðar, Hattar og Leiknis F. í 2. deild kvenna.

Það var mikið undir í leiknu því bæði lið freistuðu þess að blanda sér í toppbaráttuna og það var því hart barist.

Völsungsstelpur léku ágætlega í leiknum en það vantaði herslumuninn á síðasta þriðjungnum til að klára leikinn. Niðurstaðan markalaust jafmntefli.

Staðan í deildinni er hér en Völsungur er í 3. sæti með 16 stig eftir 10 leiki.

Marta Sóley Sigmarsdóttir - John Andrews

Marta Sóley Sigmarsdóttir var valin maður leiksins og hún hlaut peysu frá Icewear að launum sem John Andrews þjálfari Völsungs afhenti henni. Ljósmynd Græni herinn.

IFV_Arnhildur

Arnhildur Ingvarsdóttir sækir fram.

IFV_Elfa Mjoll

Elfa Mjöll Jónsdóttir geysist upp kantinn.

IFV_Harpa

Harpa fyrirliði Ásgeirsdóttir sækir að marki.

IFV_Dagbjört

Dagbjört Ingvarsdóttir til varnar.

IFV_Jóney

Jóney Ósk Sigurbjörnsdóttir lætur vaða að marki.

Með því að smella á myndirnar er hægt að fletta þeim og skoða í stærri upplausn.

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744