Margrét Hólm nýr útibússtjóri Íslandsbanka á HúsavíkAlmennt - - Lestrar 591
Margrét Hólm Valsdóttir hefur verið ráðin útibússtjóri útibús Íslandsbanka á Húsavík.
Í tilkynningu á vef Íslandsbanka segir að Margrét Hólm muni hefja störf um miðjan ágúst en hún tekur við af Höskuldi Skúla Hallgrímssyni.
Margrét Hólm er með B.Sc. í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri, iðnrekstrarfræðingur af markaðssviði frá sama skóla og með Diploma í ferðamálafræði frá Háskólanum á Hólum.
Hún hefur gegnt stöðu skrifstofustjóra hjá Norðurþingi frá 2015, var Sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Suður –Þingeyinga á árunum 1999-2005, skrifstofustjóri Reynihlíðar hf. í Mývatnssveit og síðar sölu- og markaðsstjóri og áður en hún réði sig til Norðurþings, var hún hótelsstjóri Hótel Laxár í Mývatnssveit.