Margrét Hólm nýr útibússtjóri Íslandsbanka á Húsavík

Margrét Hólm Valsdóttir hefur verið ráðin útibússtjóri útibús Íslandsbanka á Húsavík.

Margrét Hólm Valsdóttir,
Margrét Hólm Valsdóttir,

Margrét Hólm Valsdóttir hefur verið ráðin útibússtjóri útibús Íslandsbanka á Húsavík.

Í tilkynningu á vef Íslandsbanka segir að Margrét Hólm muni hefja störf um miðjan ágúst en hún tekur við af Höskuldi Skúla Hallgrímssyni. 

Margrét Hólm er með B.Sc. í viðskiptafræði  frá Háskólanum  á Akureyri, iðnrekstrarfræðingur af markaðssviði frá sama skóla og með Diploma í ferðamálafræði frá Háskólanum á Hólum.
 
Hún hefur gegnt stöðu skrifstofustjóra hjá Norðurþingi frá 2015, var Sparisjóðsstjóri  Sparisjóðs Suður –Þingeyinga á árunum 1999-2005, skrifstofustjóri Reynihlíðar hf. í  Mývatnssveit  og síðar sölu- og markaðsstjóri og áður en hún réði sig til Norðurþings, var hún hótelsstjóri Hótel Laxár í Mývatnssveit.  


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744