Lýr veiddist á Skjálfanda

Árið 2008 fékk Heimir Bessason, útvegsbóndi á Húsavík, fisk í veiðafæri sín sem var ólíkur öllum þeim fiskum sem hann var vanur að veiða hér á Skjálfanda.

Lýr veiddist á Skjálfanda
Almennt - - Lestrar 629

Lýr (Pollachius pollachius). Ljósm. nna.is
Lýr (Pollachius pollachius). Ljósm. nna.is

Árið 2008 fékk Heimir Bessason, útvegsbóndi á Húsavík, fisk í veiðafæri sín sem var ólíkur öllum þeim fiskum sem hann var vanur að veiða hér á Skjálfanda. Hann frysti því fiskinn og kom honum síðar til Náttúrustofu Norðausturlands.

 

Í frétt á vefsíðu Náttúrustofunnar segir að þar á bæ hafi menn klórað sér lengi í kollinum en ekki komist að neinni niðurstöðu. Fiskurinn var síðan sendur til sérfræðings Hafrannsóknarstofnunar, Jónbjörns Pálssonar, sem greindi fiskinn sem lý (Pollachius pollachius).

 

Lýr er náskyldur ufsa en þeir tilheyra sömu ættkvísl. Lýr hefur mun sverari stirtlu en ufsi, rákin er sveigðari auk þess sem neðri kjálkinn skagar mun lengra fram hjá lý en ufsa. Liturinn, sem getur verið breytilegur, er oft ólífugrænn eða brúnn að ofan en silfraður að neðan ólíkt ufsanum sem er bláleitur.

Lýr lifir við vesturströnd Evrópu en er flækingsfiskur hér við land. Hann veiðist öðru hverju undan suðurströndinni en afar sjaldgæft er veiða hann við norðurströndina.

Heimir Bessason landar hér úr báti sínum í júnímánuði 2005.

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744