04. mar
Lokunum aflétt við DettifossAlmennt - - Lestrar 148
Í ljósi þess að eldgosinu í Holu-hrauni er lokið og dregið hefur úr jarðhræringum í Bárðarbungu hefur lögreglustjórinn á Norður-landi Eystra ákveðið að aflétta lokunum í Jökulsárgljúfrum, norðan þjóðvegar 1.
Í tilkynningu á vef Almannavarna segir að ennþá sé fólk þó hvatt til að fara um með gát og og dvelja ekki lengi niður í gljúfrunum sjálfum og vera í fjarskiptasambandi.
Áfram er í gildi lokun í kringum Holuhraun og verður ákvörðun um framhaldið tekið í byrjun næstu viku. (almannavarnir.is)