Lokanir á svæðum norðan DyngjujökulsAlmennt - - Lestrar 168
Lögreglustjórarnir á Húsavík og Seyðisfirði hafa ákveðið að loka og rýma hálendið norðan Dyngjujökuls vegna jarðhræring-anna í kring um Bárðarbungu undanfarna daga.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavörnum
Hefur lögreglan á Húsavík og Seyðisfirði nú þegar lokað leiðum inn á svæðið og vinnur að því að ná til þeirra ferðamanna sem eru á hálendinu norðan Dyngjujökuls í því skyni að þeir yfirgefi svæðið.
Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórana á Húsavík og Seyðisfirði og í samræmi við mat vísindamanna ákveðið að lýsa yfir hættustigi almannavarna á svæðinu norðan Dyngjujökuls.
Hættustig almannavarna er lýst yfir; “Ef hættumat leiðir í ljós að hætta fer vaxandi verður að grípa til tafarlausra ráðstafana til að tryggja sem best öryggi þeirra sem á svæðinu búa/dvelja. Slíkt er gert með því að efla viðbúnað neyðar- og öryggisþjónustunnar á viðkomandi svæði, ásamt því að grípa til fyrirbyggjandi aðgerða s.s. rýmingar, brottflutnings eða lokunar svæða. Einnig eru leiðbeiningar og viðvaranir einkennandi fyrir þetta stig.” (641.is)
Vegir norðan Dyngjujökuls eru lokaðir. Vegagerðin. smella á til að stækka.