10. júl
Lögreglan óskar eftir þyrlu til að leita að hvítabirninumAlmennt - - Lestrar 392
Í morgun ákvað lögreglan á Norðurlandi eystra að óska eftir því við Landhelgisgæsluna að þyrla myndi ásamt lögreglu fljúga að nýju yfir svæðið þar sem tilkynnt var um ísbjörn á Melrakkasléttu í gær.
Er það gert í öryggisskyni en engin önnur tilkynning, en sú sem kom í gær, hefur borist lögreglu um björninn.
Ekkert sást til bjarnarins í flugi LHG í gærkveldi.
Lögreglan vill árétta við fólk á svæðinu að ef að það verður vart við dýrið þá skal hafa samband við 112.