Lögin af Vísnaplötunum flutt í Salnum í Kópavogi

40 ár eru liðin frá útgáfu plötunnar Út um græna grundu og af því tilefni verður tónlistin af þessum plötum flutt í Salnum í Kópavogi um helgina.

Lögin af Vísnaplötunum flutt í Salnum í Kópavogi
Fréttatilkynning - - Lestrar 629

Frá tónleikunum í Norrænahúsinu.
Frá tónleikunum í Norrænahúsinu.

40 ár eru liðin frá útgáfu plötunnar Út um græna grundu og af því tilefni verður tónlistin af þessum plötum flutt í Salnum í Kópavogi um helgina.

Um er að ræða útsetningar Gunnars Þórðarsonar og er tónlistarstjórn í höndum Guðna Bragasonar en um leikstjórn sér Jóhann Kristinn Gunnarsson.

Stórsöngvararnir Kristján Gíslason og Alma Rut Kristjánsdóttir auk 7 manna hrynsveitar, blásara, strengjasveitar, bakradda og barnakór sjá um að koma þessu vel til skila.

Það er G.B viðburðir sem stendur fyrir þessum tónleikum en áður hafa verið tvennir tónleikar hér á Húsavík

Um síðustu helgi tók hluti hópsins þátt í barna og fjölskylduskemmtun í Norrænahúsinu sem haldin var í tengslum við Airwaveshátíðina.

Miðasala er á salurinn.is og tix.is  N

Nú er um að gera að fjölmenna í Salinn kl. 20 nk. laugardag því þetta er eitthvað sem engin má missa af.



  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744