15. feb
Ljósmyndauppboð til styrktar góðu málefni - Myndin fór á 75.000 krAlmennt - - Lestrar 595
Þá er runninn upp síðasti dagur ljósmyndauppboðs 640.is og Ljósmyndastofu Péturs á meðfylgjandi ljósmynd sem Hafþór Hreiðarsson tók.
Hún verður í stærðinni 70x35 cm. prentuð á striga og sett á blindramma.
Uppboðið stendur til og með 15. febrúar og er hæsta boð sem stendur 75.000 kr. án vsk.
Söluverðmæti myndarinnar mun allt renna til Krabbameinsfélags Suður Þingeyinga.
https://www.krabb.is/sudurthingeyingar/
Áhugasamir sendi tilboð á vefstjori@640.is