Lengjubikarinn - Stórsigur á Hetti

Völsungur sótti Hött heim í dag í Lengjubikarnum en leikið var á Fellavelli.

Lengjubikarinn - Stórsigur á Hetti
Íþróttir - - Lestrar 561

Bjarki Baldvinsson skoraði eitt mark í dag.
Bjarki Baldvinsson skoraði eitt mark í dag.

Völsungur sótti Hött heim í dag í Lengjubikarnum en leikið var á Fellavelli.

Völsungar byrjuðu betur í dag og gamla kempan Gunnar Sigurður Jósteinsson og Atli Barkason komu þeim í 2-0 með stuttu millibili um miðjan fyrri hálfleik. 

Höttur náði að minnka muninn með marki Brynjars Árnasonar og staðan í hálfleik var 2-1. Fyrirliði Völsunga Bjarki Baldvinsson skoraði í upphafi seinni hálfleiks og staðan aftur orðin vænleg fyrir þá grænu.

Brynjar Árnason minnkaði aftur muninn fyrir Hött á 60. mínútu leiksins en Völsungar bættu í. Sæþór Olgeirsson og Bergur Jónmundsson skoruðu tvö mörk til viðbótar og lokatölur 5-2 fyrir Völsung sem fer vel af stað í Lengjubikarnum. 

Hér má sjá stöðuna í 4. riðli B-deildar Lengjubikarsins




  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744