Leit Fuglaverndar að Fugli ársins 2021 er hafin!

Fuglar eru hluti af daglegu lífi fólks, flestir eiga sinn uppáhalds fugl og hverjum þykir sinn fugl fagur.

Leit Fuglaverndar að Fugli ársins 2021 er hafin!
Fréttatilkynning - - Lestrar 123

Fuglar eru hluti af daglegu lífi fólks, flestir eiga sinn uppáhalds fugl og hverjum þykir sinn fugl fagur. 

Í vetur hafa staðfuglar og vetrargestir glatt okkur með nærveru sinni en nú nálgast vorið og farfuglarnir fara að tínast til okkar á eyjunni fögru.

Fuglavernd ætlar að fagna vorkomunni með kosningu á Fugli ársins 2021 og verður sigurvegarinn kynntur með fjaðrafoki og látum á sumardaginn fyrsta. 

Valdir verða 20 fuglar í framboð fyrir kosninguna sjálfa sem fram fer í apríl. En fólki hjá Fuglavernd er vandi á höndum því um 100 tegundir fugla ýmist búa hér allt árið eða hluta úr ári og allir eru þeir auðvitað stórkostlegir, hver á sinn hátt.

Því leitar Fuglavernd hjálpar og biður fólk að tilnefna fugl sem því finnst eiga skilið að keppa um titilinn Fugl ársins 2021. Hægt er að finna eyðublað fyrir tilnefningar á vefnum fuglavernd.is. Opið er fyrir tilnefningar til 20. mars. 

Fuglavernd hvetur líka þá sem brenna fyrir velgegni ákveðins fugls í keppninni til að sækja um stöðu kosningastjóra fyrir fuglinn og reyna að gefa honum byr undir báða vængi á samfélagsmiðlum og í heitu pottunum. 

Keppnin er haldin til að vekja athygli á málefnum fugla í gamni og alvöru og er sefnt að því að hún verði árviss viðburður. 

Vefslóð Fugls ársins 2021: http://www.fuglavernd.is/fugl-arsins 

Kassamerki: #FuglArsins2021 #Fuglavernd 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744