Landsvirkjun og Carbon Recycling International undirrita viljayfirlýsingu um hagkvæmnisathugun á metanólverksmiðju

Landsvirkjun og Carbon Recycling International (CRI) hafa undirritað viljayfirlýsingu um að meta hagkvæmni þess að reisa metanólverksmiðju í nágrenni

Krafla. Ljósm. HMH.
Krafla. Ljósm. HMH.

Landsvirkjun og Carbon Recycling International (CRI) hafa undirritað viljayfirlýsingu um að meta hagkvæmni þess að reisa metanólverksmiðju í nágrenni jarðvarmavirkjunar Landsvirkjunar við Kröflu.

 

Gert er ráð fyrir að efnamælingar hefjist á svæðinu í upphafi árs 2011. Landsvirkjun og CRI kynntu sveitarstjórn Skútustaðahrepps þessar hugmyndir fyrr í þessari viku.

 

Verksmiðjan myndi hreinsa koltvísýring úr útblæstri Kröflustöðvar og breyta honum í metanól með hjálp raforku og vatns. Hugsanleg orkuþörf verksmiðjunnar er 50-60 MW og myndi hún þá framleiða 50-100 milljónir lítra af metanóli á ári með hliðsjón af þeirri framleiðsluaðferð sem yrði notuð.

 

Undirbúningur við hugsanlega verksmiðju gæti hafist á fyrri hluta árs 2011 ef fýsileiki metanólframleiðslu á svæðinu verður staðfestur og Landsvirkjun og CRI ná samkomulagi um skilmála orkusölusamnings. Í undirbúningi felst meðal annars öflun nauðsynlegra leyfa og samningaviðræður við hagsmunaaðila.

 

Vefsíða Carbon Recycling

 

Landsvirkjun.is


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744