Kvennalið Völsungs komið í undanúrslit í bikarkeppni BLÍ

Kvennalið Völsungs í blaki tryggði sér um helgina sæti í undanúrslitum bikarkeppni BLÍ.

Ashley Diedrich nýr leikmaður Völsungs.
Ashley Diedrich nýr leikmaður Völsungs.

Kvennalið Völsungs í blaki tryggði sér um helgina sæti í undanúrslitum bikarkeppni BLÍ.

Þær gerðu það með öruggum sigri á liði UMFL á Laugarvatni 3-0 í átta liða úrslitum

Helgina 23.-24. mars verður leikið til úrslita í bikarkeppninni í Laugardalshöllinni bæði í meistaraflokkum karla og kvenna og yngri flokkum stráka og stelpna

Það verður græn stemmning í Laugardalshöllinni þar sem Völsungur mun eiga 3 lið í þessari úslitakeppni því ásamt meistaraflokki kvenna munu bæði  stráka og stelpulið Völsungs í 4. flokki leika til úrslita í bikarkeppni yngri flokka. 

Ashley

Nú fyrir helgi var gengið frá samningi við hina Bandarísku Ashley Diedrich sem mun leika með meistarflokki kvenna út tímabilið. Ashley  er kantsmassari og öflugur leikmaður sem mun styrkja Völsungssliðið verulega í lokabaráttunni í vetur.

Blaklið Völsungs

Blaklið strákar

blaklið stelpur


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744