06. nóv
Kvartað vegna ástands göngustígsin í VillasneiðingnumAlmennt - - Lestrar 265
Fyrir fundi skipulags- og framkvæmdaráði Norðurþings í gær lá fyrir kvörtun vegna ástands göngustígsins í Villasneiðingnum milli Héðinsbrautar og Höfðavegar.
"Steinar eru lausir á gönguleiðinni og geta valdið hættu á að börn/fólk hrasi og slasi sig.
Mikil umferð gangandi fólks er um "Sneiðinginn" bæði af Höfðavegi-num og Brekkunum.
Fólk hefur verið að setja steina uppá körin sem eru líka hlaðin og þeim hefur ekki verið viðhaldið" segir í kvörtuninni.
Skipulags- og framkvæmdaráð þakkaði erindið og fól framkvæmda- og þjónustufulltrúa að kanna aðstæður og sjá til þess að öryggi á gangstígnum sé tryggt.