Kristinn Rúnar á leið í framboð – bóndi í boði!

Kristinn Rúnar Tryggvason bóndi á Hóli í Kelduhverfi býður sig fram í forvali Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi fyrir Alþingskosningarnar í haust.

Kristinn Rúnar á leið í framboð – bóndi í boði!
Fréttatilkynning - - Lestrar 333

Kristinn Rúnar á fáki sínum.
Kristinn Rúnar á fáki sínum.

Kristinn Rúnar Tryggvason bóndi á Hóli í Kelduhverfi býður sig fram í forvali Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi fyrir Alþingskosningarnar í haust.

Kristinn Rúnar sem sækist eftir 2-4 sæti sendi frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu í dag:

Ég heiti Kristinn Rúnar Tryggvason bóndi á Hóli í Kelduhverfi, 53 ára gamall og hlýði nafninu Rúnar á Hóli. 

Ég hef staðið fyrir búrekstri síðan 1989 – hefðbundnum búskap og alls konar öðru með eins og ferðaþjónustu, gistingu, hestaleigu, verktakastarfsemi í landbúnaði og skólaakstri svo eitthvað sé nefnt.  Ég hef verið virkur í félagsmálum í minni heimabyggð og meira segja fengið að syngja með Karlakórnum Hreim. 

Það sem rekur mig áfram í stjórnmál og áhuga á þeim er fyrst og fremst byggðamál sem auðvitað spanna flesta þætti samfélagsins eins og t.d. atvinnumál, landbúnaður, samgöngur, fjarskipti, tækifæri til menntunar, jafnréttismál og svo framvegis.  Það er aðallega byggðaþróunin sem vekur mér ugg og ég hef átt erfitt með að horfa upp á byggðina mína og upplifa þá hnignun sem þar hefur átt sér stað síðustu áratugina. Jafnrétti til búsetu er lykilatriði og við eigum að hafa kjark til að beita skattkerfinu til að ná árangri.

Ég vil leggja mitt af mörkum til að reyna að snúa þessu við því ég trúi að við sem þjóð værum mun fátækari ef byggð í landinu leggst víða af eins og allt stefnir í að óbreyttu.  Við höfum mörg úrræði sem ekki hafa verið notuð hérlendis en gætu snúið þessari þróun við og mun ég fara nánar út í það í pistlum og greinum á næstunni.

Þess vegna hef ég ákveðið að gefa kost á mér í forvali Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi til Alþingiskosninga sem fram fara í haust og óska eftir 2 – 4. sæti á lista flokksins og þætti afar vænt um að fá ykkar stuðning til að fara í þá baráttu og leggja þá mitt af mörkum til að gera landi og þjóð eitthvert gagn.

Þeir sem vilja styðja mig geta skráð sig í Framsóknarflokkinn til 30. janúar á heimasíðu flokksins https://framsokn.is/nyjast/frettir/taka-thatt/

Val á lista fer fram í póstkosningu 1. til 31. mars nk.  Atkvæðisrétt hafa flokksbundnir Framsóknarmenn í kjördæminu.

Hvet ykkur til að hafa samband hvenær sem er í gegnum Facebook, tölvupóst runaraholi@gmail.com eða síma 846-3835 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744