07. jan
Keldhverfingar kvöddu jólin með brennu og grímuballiAlmennt - - Lestrar 394
Keldhverfingar kvöddu jólin á Þrettándanum með brennu í Sandvíkinni við Lónin.
Það var Ungmennafélagið Leifur heppni sem stóð að Þrettánda-gleðinni og samkvæmt hefð í sveitinni var grímuball í Skúlagarði að brennu lokinni.
Á fésbókarsíðu ungmenna-félagsins segir að ekki hafi verið haldin Þrettándabrenna í nokkur ár og Ólafur Jónsson bóndi á Fjöllum eigi heiðurinn af því að hafa endurvakið hana af værum blundi.
Meðfylgjandi mynd er af Fésbókarsíðu Ungmennafélagsins Leifs heppna.