KCP , Korea Concrete Pumps hefja innflutning á steypudælum til Íslands.

KCP bjóða nú íslenskum steypuframleiðendum upp á nýjan hagkvæman valkost við dælingu á steypu.

Steypudæla frá KCP við höfuðstöðvar þeirra.
Steypudæla frá KCP við höfuðstöðvar þeirra.

KCP bjóða nú íslenskum steypuframleiðendum upp á nýjan hagkvæman valkost við dælingu á steypu. 

Í fréttatilkynningu segir að fyrirtækið noti hágæða stál frá SSAB í Svíþjóð sem gerir dælur KCP að jafnaði 5 til 10% léttari en frá öðrum framleiðendum.  Dælurnar eru framleiddar allt frá 19 metrum upp í 70 metra langar og því er ekkert verk of lítið eða of stórt fyrir steypudælurnar frá þeim.

Steypudælurnar fyrir Evrópumarkað koma á Mercedes bílum og eru settar saman í Austurríki. 

KCP er stærsti framleiðandi á steypudælum í Kóreu og hafa steypudælurnar þeirra verið ár eftir ár, kjörnar þær bestu þar í landi.

„Dælurnar okkar eru í notkun víða um heiminn, allt frá Bandaríkjunum og Kanada til Ástralíu og Rússlands.  Við erum ákaflega ánægðir að bæta Íslandi á lista yfir lönd þar sem finna má ánægða viðskiptavini okkar“  segir Hyun-uk Shin svæðisstjóri KCP í Austurríki

Fyrsta dælan á Íslandi fer til Steinsteypis ehf á Húsavík.  Steypudælan er 37 metrar að lengd. Hún er þegar komin í gagnið og farin að dæla steypu fyrir norðan. 

„Eftir að hafa heimsótt KCP í Austurríki og kynnt okkur framleiðslu þeirra tókum við ákvörðun um að kaupa dælu frá þeim.  Hagkvæmt verð og gott aðgengi að þjónustu skiptir þar talsverðu máli. Við hlökkum mikið til að nýta dæluna við frekari steypuverkefni á Húsavík og næsta nágrenni á komandi misserum“ segir Kristinn J. Ásgrímsson framkvæmdastjóri Steinsteypis ehf á Húsavík

Söluaðili á steypudælum frá KCP á Íslandi er Trukkar ehf í Kópavogi www.trukkur.is

Aðsend ljósmynd

Friðrik Baldursson (t.h) dælubílstjóri hjá Steinsteypi ehf á Húsavík tók við fyrsta steypudælubílnum hjá Trukki.is  Hafþór Rúnar Sigurðsson (t.v.) framkvæmdastjóri Trukka afhenti honum dælubílinn.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744