Jónas Friðrik samdi Þorrabrag fyrir blótið í ár

Jónas Friðrik Guðnason á Raufarhöfn samdi skemmtilegan þorrabrag sem sunginn verður á blóti Raufarhafnarbúa í ár.

Frá Raufarhöfn.
Frá Raufarhöfn.

Jónas Friðrik Guðnason á Raufarhöfn samdi skemmtilegan þorrabrag sem sunginn verður á blóti þeirra Raufarhafnarbúa í ár.

Og vonandi á öllum blótum hér eftir eins segir á heimasíðu Raufarhafnar.

Nú er um að gera að æfa sig, lagið er „Þá stundi Mundi“

Þorrablótssöngur

Á norðausturhorninu hitastig er
hækkand´er líða á janúar fer. 
Þá bursta menn skóna og bóna í hel 
sköllótta karla, svo skíni þeir vel. 
Og svo gaula Raufsar: þett´er gott, þett´er gott, 
nú þorrablót höldum og það verður flott.

Og brottfluttir Raufsar þá brjótast um fjöll 
í brjálaðri ófærð. „Nú mætum við öll“. 
Í framhald´af því verður klappað og kysst 
og hlegið og grátið af hreinustu list. 
Og þá raula Raufsar: þett´er flott, þett´er flott, 
á þorrablót förum, það finnst okkur gott.

Og svo verður dregið fram allt sem er ætt 
og ef til vill fleiru í dallana bætt. 
Og eins verður sullað með ýmislegt blaut: 
ósoðið, þrísoðið, hvítt bæð´og rautt. 
Og þá gaula Raufsar: þett´er hikk, þett´er hikk. 
Á þorrablót förum, þá fæ ég mér drykk.

Og þá verður kjamsað um súrt bæð´og sætt 
og sumt jafnvel gleypt þar, sem telst varla ætt. 
Og reykt bæð´og saltað og sviðið og kæst 
er sett on´í hítina ef til þess næst. 
Og þá rymur Raufsinn: þett´er sælt, þett´er sælt. 
Þá hákarl er bestur ef honum er ælt.

Og hér er ei talað neitt hæverskurugl, 
en hávær og montinn hver einasti fugl. 
Og refsing ei sett á þig sár eða þung, 
þó segir þú konu að bíta í pung. 
Og svo gaular Raufsinn: þetta yndislegt er 
og sjáðu nú engillinn eistun hjá mér.

Og nóttin hún líður við daður og dans 
af dugnaði hreinum, svo verður ei stans. 
Því hvernig sem árin þig á hafa sótt,
þú yngist að nýju á þorrablótsnótt. 
Og þá syngja Raufsar: þett´er kátt, þett´er kátt, 
þorrablót er það, svo höfum nú hátt.

Og loks undir morgunn þeir mjakast svo heim, 
margir á fjórum, en aðrir á tveim. 
Og sannað enn hafa að hvergi má sjá 
jafn helruglað sukkaralið eins og þá. 
Og þá stynja Raufsar: er þett´ekk´orðið gott? 
Við þorrablót héldum, var það ekki flott?

Og þá stynja Raufsar: er þett´ekk´orðið gott? 
Við þorrablót héldum, var það ekki flott?

J.F.G

 

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744