08. jan
Jólin kvödd með brennu og flugeldumAlmennt - - Lestrar 383
Húsvíkingar kvöddu jólin síðdegis í dag, vonum seinna en vegna aurbleytu á brennustað á Þrettándanum var brennunni frestað um tvo daga.
Brennan var á brennustæðinu við Skjólbrekku líkt og áramótabrennur unfanfarinna áratuga.
Guðni Braga sá um söng og flugeldasýning Kiwanismanna var á sínum stað.
Hér að neðan eru nokkrar myndir sem ljósmyndari 640.is tók og með því að smella á þær er hægt að fletta þeim og skoða í hærri upplausn.