John Andrews hættir með kvennalið Völsung

John Andrews hefur ákveðið að hætta sem þjálfari kvennaliðs Völsungs en hann greindi frá þessari ákvörðun sinni á Instagram.

John Andrews hættir með kvennalið Völsung
Íþróttir - - Lestrar 383

John Andrews hefur ákveðið að hætta sem þjálfari kvennaliðs Völsungs en hann greindi frá þessari ákvörðun sinni á Instagram.

Völsungur vann 2. deildina í sumar undir stjórn John en hann stýrði liðinu einnig í fyrra. 

„Við höfum átt ótrúlegan tíma saman, tekið liðið í nýjar hæðir og staðið okkur framar væntingum með því að vinna deildarmeistaratitilinn í síðustu viku," sagði John. 

„Ég hef notið tímans og hlakka til næstu áskorunnar." 

„Ég vil þakka öllum hjá Völsungi, leikmönnum, starfsfólki og stjórn fyrir þennan ótrúlega velgengnistíma og óska félaginu alls hins besta í að halda áfram fram á við."
 

John er frá Írlandi en hann stýrði Aftureldingu í Pepsi-deild kvenna á árunum 2010 til 2013. (fotbolti.net)


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744