Jenný Lára mun leikstýra í Dýrunum í Hálsaskógi

Leikfélagið hefur ráðið Jenný Láru Arnórsdóttur til að leikstýra Dýrunum í Hálsaskógi eftir Thorbjörn Egner sem sýnt verður í byrjun árs 2016.

Jenný Lára mun leikstýra í Dýrunum í Hálsaskógi
Fréttatilkynning - - Lestrar 539

Jenný Lára Arnórsdóttir.
Jenný Lára Arnórsdóttir.

Leikfélagið hefur ráðið Jenný Láru Arnórsdóttur til að leikstýra Dýrunum í Hálsaskógi eftir Thorbjörn Egner sem sýnt verður í byrjun árs 2016. 

Áætlað er að hefja samlestur og æfingar í byrjun nóvember og taka  frí í desember og byrja að fullum krafti  aftur í  janúar. Frumsýning er svo áætluð um miðjan febrúar.


Jenný Lára útskrifaðist sem leikari og leikstjóri frá The Kogan Academy of the Dramatic Arts í London árið 2012. Hún hefur leikstýrt nokkrum verkum, þar á meðal Hinn fullkomni jafningi, sem var sýndur í Norðurpólnum haustið 2012, Act Alone hátíðinni 2013 og á alþjóðlegri leiklistarhátíð í Dublin núna vorið 2015. Einnig leikstýrði hún verkinu Einki orð sem frumsýnt var á Tjóðpallinum í Færeyjum og ferðaðist svo um eyjarnar. Hún hefur að auki leikstýrt nokkrum áhugaleiksýningum. Hún er stofnandi og listrænn stjórnandi Uppsprettunnar, sem er einskonar skyndileikhús sem snýst um að kynna nýja höfunda, leikara og leikstjóra og er reglulega sett upp í Tjarnarbíói.

Hún lék í myndinni Hrútum og hefur einnig leikið í allskonar sýningum og búið sjálf til sýningar upp úr viðtölum við fólk, þ.m.t. Elska sem sýnt var í flestum sveitarfélögum í Þingeyjarsýslunum, en verkið vann hún úr raunverulegum ástarsögum Þingeyinga. Nú síðast setti hún upp sýningu í rútu, ásamt leikkonunni Aðalbjörgu Árnadóttur, sem keyrði yfir Melrakkasléttu og fjallaði um sögu staðarins og það að ferðast vegna vinnu. Sú sýning var einungis sýnd einu sinni á Sólstöðuhátíð á Melrakkasléttu.

Sigurður Illugason verður tónlistarstjóri sýningarinnar.  Hann er þekkur fyrir sína frábæru leik og tónlistarhæfileika. Hann hefur tekið þátt í sýningum LH undanfarin 30 ár ásamt því að vera í hinum og þessum hljómsveitum og að semja eigin lög.  Svo skemmtilega vill til að hann er frændi Jennýjar og spennandi  verður að sjá “ Dýrin“  lifna við undir þeirra stjórn.

Leikfélagið býður þau velkomin til starfa, það er skemmtilegur vetur framundan segir í fréttatilkynningu frá LH.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744