JAK bíður á útgáfutónleika í Skjólbrekku

Söngvarinn Stefán Jakobsson, sem hefur fyrir löngu getið sér gott orð með hljómsveitinni DIMMA og víðar, hefur undanfarin misseri unnið að sinni fyrstu

JAK bíður á útgáfutónleika í Skjólbrekku
Fréttatilkynning - - Lestrar 479

Söngvarinn Stefán Jakobsson, sem hefur fyrir löngu getið sér gott orð með hljómsveitinni DIMMA og víðar, hefur undanfarin misseri unnið að sinni fyrstu sólóplötu.

Loksins er kominn tími til að opinbera afraksturinn og ætlar JAK að bjóða sveitungum og nærsveitungum á útgáfutónleika í Skjólbrekku 24. nóvember næstkomandi. 

Platan nefnist einfaldlega JAK sem er einnig listamanns nafn Stefáns en tónlistina vann Stefán í samvinnu við Halldór Á Björnsson (Legend). Textasmíðar voru svo í höndum Stefáns og Magnúsar Þórs.

Landskunnir tónlistarmenn og vinir ljáðu Stefáni raddir og hljóðfæraleik á plötunni sem spannar breitt litróf.

Nú þegar hafa lögin Flóttamaður og Ánauð fengið að hljóma í eyru landsmanna og fengið frábærar viðtökur og ratað inná vinslældarlista útvarpsstöðva.

Hljómsveitina skipa:
Stefán Jakobsson (Söngur)
Birgir Jónsson (Trommur)
Birkir Rafn Gíslason (Gítar)
Hálfdán Árnason (Bassi)

Húsið opnar kl. 20:00 og tónleikarnir hefjast kl.20:30. 

Allir velkomnir. Enginn aðgangseyrir. 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744