Jafntefli í grannaslagnum

Völsungur sótti nágranna sína í Magna heim á Grenivíkurvöll í kvöld.

Jafntefli í grannaslagnum
Íþróttir - - Lestrar 796

Sigvaldi skoraði jöfnunarmarkið.
Sigvaldi skoraði jöfnunarmarkið.

Völsungur sótti nágranna sína í Magna heim á Grenivíkurvöll í kvöld.

Magni var á toppi 2. deildar karla fyrir leikinn en það voru gestirnir sem komust yfir þegar Bjarki Baldvinsson skoraði á 13. mínútu leiksins.

Magni jafnaði um miðjan fyrri hálfleik með marki Péturs Heiðars Kristjánssonar og þannig var staðan þegar gengið var til leikhlés.

Heimamenn komust yfir á 39. mínútu þegar Kristinn Þór Rósbergsson skoraði en Sigvaldi Þór Einarsson jafnaði með glæsilegu marki þegar stundarfjórðungur var til leiksloka. 

Þar við sat og jafntefli í grannaslagnum niðurstaðan. 

Hér má skoða stöðuna í 2. deild karla en Magni er með þriggja stiga forskot á Njarðvík sem á leik inni. Völsungur situr í 6. sæti með 17 stig.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744