Íslenskar söngperlur í áranna rásFréttatilkynning - - Lestrar 558
Í kvöld fyllist Safnahúsið af fögrum tónum þegar tónlistarkonurnar Þórhildur Örvarsdóttir söngkona og Helga Kvam píanóleikari sækja húsvíkinga heim.
Á dagskrá tónleikanna eru íslenskar söngperlur allt frá Sigvalda Kaldalóns til Megasar.
Þær Þórhildur og Helga hafa starfað saman í nokkur ár og eru báðar í kvennahljómsveitinni Norðlenskar konur í tónlist, þær opnuðu tónleikaröð Listasumars á Akureyri með dagskránni Íslenskar söngperlur í áranna rás fyrir fullum sal.
Í lok sumars fóru þær í tónleikaferð hringinn í kring um landið og var gríðar vel tekið. Þórhildur og Helga eru þekktar fyrir einstakan samhljóm og skemmtilega sviðsframkomu og er óhætt að lofa góðri kvöldstund þar sem íslensku söngperlurnar í gegnum árin munu draga fram minningar þeirra sem á hlýða.
Miðaverð er krónur 2500 við innganginn.