Íslenskar söngperlur í áranna rás - Tónleikar í Reykjahlíðarkirkju 7.ágúst

Íslenskar söngperlur í áranna rás er yfirskrift tónleika sem Þórhildur Örvarsdóttir söngkona og Helga Kvam píanóleikari halda í Reykjahlíðarkirkju

Íslenskar söngperlur í áranna rás er yfirskrift tónleika sem Þórhildur Örvarsdóttir söngkona og Helga Kvam píanóleikari halda í Reykjahlíðarkirkju mánudaginn 7. ágúst kl. 20.00.

Á dagskrá eru íslenskar söngperlur allt frá Sigvalda Kaldalóns til Megasar.

Þórhildur og Helga hafa starfað saman í nokkur ár og eru báðar í kvennahljómsveitinni Norðlenskar konur í tónlist, þær opnuðu tónleikaröð Listasumars á Akureyri með dagskránni Íslenskar söngperlur í áranna rás fyrir fullum sal.

Þórhildur og Helga eru þekktar fyrir einstakan samhljóm og skemmtilega sviðsframkomu og er óhætt að lofa góðri kvöldstund þar sem íslensku söngperlurnar í gegnum árin munu draga fram minningar þeirra sem á hlýða.

Miðaverð er krónur 2500 við innganginn.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744