Íslandsbanki styður við knattspyrnudeild Völsungs

Knattspyrnudeild Völsungs og Íslandsbanki hafa gert með sér samstarfssamning til þriggja ára um stuðning bankans við knattspyrnudeild félagsins.

Höskuldur Skúli og Víðir Svansson.
Höskuldur Skúli og Víðir Svansson.

Knattspyrnudeild Völsungs og Íslandsbanki hafa gert með sér samstarfssamning til þriggja ára um stuðning bankans við knattspyrnudeild félagsins.

Á heimasíðu Völsungs segir að samkvæmt samningnum fær deildin árlegar greiðslur og á móti verður Íslandsbanki sýnilegur í formi auglýsinga hjá félaginu á búningum meistaraflokka karla og kvenna.

Það voru Víðir Svansson, fulltrúi knattspyrnudeildar, og Höskuldur Skúli Hallgrímsson útibússtjóri Íslandsbanka sem handsöluðu samninginn eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.

Höskuldur Skúli og Víðir Svansson


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744