18. maí
Íbúar Norðurþings nálgast 3.000Almennt - - Lestrar 210
Í dag, 18. maí 2017, eru íbúar Norðurþings 2.998 að tölu.
Á heimasíðu Norðurþings segir að það sé skemmtilegur áfangi þegar íbúafjöldi í sveitarfélagi fari yfir 3.000 íbúa en vonir standa til þess að þeim áfanga verði náð á næstu dögum.
Íbúaþróun í Norðurþingi hefur verið mjög jákvæð og hröð undanfarin misseri, en frá upphafi árs 2016 hefur íbúum fjölgað um 173. Íbúafjölgunin er í samræmi við þann mikla kraft sem einkennir samfélag og atvinnulíf í Norðurþingi.
Það verður spennandi að sjá hver verður íbúi nr. 3.000 í Norðurþingi.