Húsvíkingar í fluggír í Vorhlaupi VMA

Vorhlaup VMA fór fram á Akureyri í gær og nokkrir Húsvíkingar og nærsveitungar voru á meðal keppenda og settu margir sína bestu tíma.

Húsvíkingar í fluggír í Vorhlaupi VMA
Íþróttir - - Lestrar 609

Við rásmarkið. Lj. Hilmar Friðjónsson.
Við rásmarkið. Lj. Hilmar Friðjónsson.

Vorhlaup VMA fór fram á Akureyri í gær og nokkrir Húsvíkingar og nærsveitungar voru á meðal keppenda og settu margir sína bestu tíma.

Inga Sigurrós Þórisdóttir varð í öðru sæti í flokki framhalds-skólastúlkna á tímanum 01:10. Vel gert hjá Ingu í sínu fyrsta 10 km hlaupi.
 
Björn Gunnar Þórisson gerði vel og hljóp á 55:20 í sínu fyrsta 10 km keppnishlaupi og var í 8. sæti í flokki framhaldsskóladrengja.
 
Hlynur Aðalsteinsson varð fyrstur í 10 km. flokki framhaldsskóladrengja á glæsilegum tíma 38:40. 
Atli Steinn, Heiðar Hrafn og Arnór Aðlsteinn.
 
Atli Steinn, Heiðar Hrafn og Arnór Aðalsteinn.
 
Þeir kumpánar Heiðar Hrafn Halldórsson, Arnór Aðalsteinn Ragnarsson og Atli Steinn Sveinbjörnsson kepptu allir í opnum flokki 10 km. og náðu mjög góðum árangri. Atli 39:21, Heiðar 39:42 og Arnór 44:44. 
 
Um var að ræða mikla bætingu á persónulegum bestu tímum Heiðars og Arnórs.
 
Má með sanni segja að ánægjulegt sé að sjá góðan árangur hjá okkar fulltrúum og greinilegt að mikil gróska er í íþróttalífinu um þessar mundir bæði á sviði einstaklings- og hópíþrótta. 640.is/Á.S.Ó.
 
Vorhlaup VMA
 
Atli Steinn nr. 97 og Hlynur Aðalsteinsson nr. 81. Ljósmynd Hilmar Friðjónsson. 
 

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744