Húsavíkurstofa - Þjónusta verði í boði alla daga ársins

Aðalfundur Húsavíkurstofu var haldinn í Hvalasafninu 6. apríl síðastliðinn. Húsavíkurstofa er vettvangur fyrir hagsmunaaðila í ferðaþjónustu á Húsavík.

Húsavíkurstofa - Þjónusta verði í boði alla daga ársins
Fréttatilkynning - - Lestrar 763

Húsavík.
Húsavík.

Aðalfundur Húsavíkurstofu var haldinn í Hvalasafninu 6. apríl síðastliðinn. Húsavíkurstofa er vettvangur fyrir hagsmunaaðila í ferðaþjónustu á Húsavík.

Á dagskrá fundarins voru hefðbundin aðalfundarstörf og önnur mál.

 

Í fréttatilkynningu segir að Húsavíkurstofa hafi átti rólegt ár 2016 enda hætti dagleg starfsemi skrifstofunnar í aprílmánuði það ár.

Þrátt fyrir það er stjórn starfandi og Húsavíkurstofa er og verður áfram mikilvægur vettvangur fyrir ferðaþjónustuaðila á Húsavík til að vinna að sameiginlegum markmiðum og berjast fyrir nauðsynlegum hagsmunamálum. Markmið fundarins var að móta ramma um framtíðarverkefni félagsins með tilliti til þarfa ferðaþjónustunnar á Húsavík og nágrenni.

Ný stjórn

Skipað var í nýja stjórn. Þar sitja:

Heiðar Halldórsson (formaður),
Valdimar Halldórsson,
Elín Þórhallsdóttir,
Gunnar Hnefill Örlygsson,
Bergþóra Höskuldsdóttir.
Til vara eru Snæbjörn Sigurðsson, Rúnar Óskarsson og Bjarni Páll Vilhjálmsson.

Þjónusta verði í boði alla daga ársins

Ýmis mál komu til umræðu á fundinum. Rætt var um nauðsyn þess að Húsavíkurstofa myndi veita stjórnvöldum aðhald með áframhaldandi ályktunum um t.d. samgöngumál í héraði. Samþykkt var samhljóða ályktun um að fundurinn fagni aukinni flugtíðni Ernis til og frá Húsavík og ferðaþjónustuaðilar vinni áfram að styrkingu á þessu flugi, ekki síst þegar dregur úr framkvæmdum á Bakka.

Fundarmenn voru sammála um að tímabært sé að helsta þjónusta sé í boði allan ársins hring fyrir ferðamenn, líka á hátíðsdögum. Hugmyndir um að skipta opnunum á hátíðsdögum á milli fyrirtækja voru settar fram til frekari skoðunar. 

Einnig voru ræddir möguleikar á þráðlausu neti fyrir ferðamenn sem heimsækja Húsavík sem myndi leiða þá í helstu upplýsingar um verslanir og þjónustu. Loks var rætt um félagsgjöld og hvernig best sé að útfæra þau. 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744