28. nóv
Húsavíkurstofa hættir sölu HúsavíkurgjafabréfaFréttatilkynning - - Lestrar 193
Stjórn Húsavíkurstofa hefur ákveðið að hætta sölu Húsavíkurgjafabréfa sem verið hafa við lýði undanfarin ár.
Í fréttatilkynningu frá Húsavíkurstofu segir að sala gjafabréfanna hafi gengið vel fyrstu árin en eftir að bankar og verslanir tóku upp sín eigin gjafakort/ gjafabréf sé í raun engin þörf lengur fyrir sérstakt Húsavíkurgjafabréf.
Eldri bréf mun gilda áfram í fjögur ár frá útgáfudegi.