Hrútadagurinn 2015 - Undirbúningur hafinn

Hrútadagsnefnd er farin að undirbúa næsta hrútadag sem halda á með pompi og prakt laugardaginn 3. október 2015.

Hrútadagurinn 2015 - Undirbúningur hafinn
Fréttatilkynning - - Lestrar 322

Hrútadagsnefnd  er farin að undirbúa næsta hrútadag sem halda á með pompi og prakt laugardaginn 3. október 2015.

Dagskráin er nú þegar farin að taka á sig mynd og verður hún troðfull af skemmtilegum uppákomum.

Á hrútadaginn koma bændur í Norður-Þingeyjarsýslu saman til að sýna og selja afurðir sínar. Faxahöllin á Raufarhöfn  er ákjósanlegur staður, miðsvæðis á sölusvæðinu og góð aðstaða fyrir bæði menn og fé. Þessi dagur er einnig til þess gerður að menn komi saman, bændur af svæðinu og þeir sem eru lengra að komnir í kauphugleiðingum, ásamt öðru áhugafólki um ræktun á sauðfé.

Auk hrútasýningar verða sölubásar, skemmtidagskrá og enginn annar en Gísli Einarsson fréttamaður verður skemmtanastjóri  og stýrir auk þess kvöldskemmtun í félagsheimilinu Hnitbjörgum eftir að dagskrá lýkur í Faxahöll.

Hrútadagsnefnd frá síðasta ári hefur tekið örlitlum breytingum og nýtt blóð hefur bæst í hópinn.
Nefndina skipa:
Frida Elisabeth Jörgensen – Sveinungsvík, frida@raufarhofn.is – 864-0363/465-1335
Ingibjörg Hanna Sigurðardóttir – Raufarhöfn, ingibjorg@raufarhofn.is – 855-1160/465-1160
Nanna Steina Höskuldsdóttir – Höfða, nannast@internet.is – 868-8647/462-1288
Árni Gunnarsson – Sveinungsvík, arni@buvis.is – 848-3245/465-1335
Eyrún Ösp Skúladóttir - Hafrafellstungu 2, eyrun82@visir.is  868-5075/465-2210
Ragnar Skúlason – Ytra-Álandi, raggiskula@hotmail.com -

Nefndin tekur fagnandi á móti hugmyndum og velgjörðarmönnum. Hægt er að hafa samband í síma eða á netfang viðkomandi nefndarmanna (sjá að ofan).


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744