Hraunkot - Fjársöfnun fyrir barnaheimili í Kenía

Hjónin á Hraunkoti í Aðaldal í Suður-Þingeyjarsýslu, Kolbeinn Kjartansson og Tora Katinka Bergeng, ætla að vera með opinn dag í sveitinni fyrir gesti og

Hraunkot - Fjársöfnun fyrir barnaheimili í Kenía
Fréttatilkynning - - Lestrar 680

Í Hraunkoti má sjá nýfædd lömb.
Í Hraunkoti má sjá nýfædd lömb.

Hjónin á Hraunkoti í Aðaldal í Suður-Þingeyjarsýslu, Kolbeinn Kjartansson og Tora Katinka Bergeng, ætla að vera með opinn dag í sveitinni fyrir gesti og gangandi, á uppstigningardag, 25. maí nk. frá kl. 13.00 til 16.00. 

Tilgangurinn er safna peningum til styrktar barnaheimili í Kenía, Hekima Place en um er ræða barnaheimili sem tekur á móti og elur upp stúlkur sem misst hafa foreldra sína úr alnæmi. Fram að þessu hafa stúlkurnar þurft að flytja á heimavist þegar þær fara í menntaskóla. Nú stendur til að byggja menntaskóla hjá barnaheimilinu og bjóða börnum í þorpinu líka upp á frekari skólagöngu.

Hraunkot-Fjársöfnun

Í febrúar sl. fóru Kolbeinn og Tora til Kenía, heimsóttu m.a. barnaheimilið, hrifumst mjög af því starfi sem þar fer fram og því starfi sem þarna er unnið fyrir þessar stúlkur.

Þau vilja leggja sitt af mörkum og ætla því að bjóða upp á skemmtilegan dag á Hraunkoti, fyrir jafnt unga sem aldna, sem vilja koma og skoða dýrin þeirra og upplifa sveitastemninguna. Aðgangseyrir er 1.000.- krónur á mann og innifalið í aðgangseyrinum, fyrir utan það að fá að heilsa upp á dýrin, er kaffi, vöfflur og djús.

Hraunkot-Kanínur

Á Hraunkoti er fjölbreytt dýralíf, kýr, naut og kálfar, kindur og nýfædd lömb, hænur, hundur og hestar og nýlega fæddust sex kanínuungar sem einnig verða til sýnis. Þá verða hestarnir til taks og verður teymt undir þeim sem vilja fara á bak. Einnig verður hoppukastali á staðnum fyrir yngstu börnin.

Hraunkot-Lamb

Kolbeinn og Tora vonast til að sjá sem allra flesta á Hraunkoti fimmtudaginn 25. maí nk., þar sem gestir geta átt ánægjulegan dag og um leið stutt við þetta verkefni þeirra. 

Nánari upplýsingar veitir Tora í síma 864-8471.

 

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744