Hópslysaæfing í umdæmi Almannavarna Þingeyinga.

Laugardaginn 3. september n.k. munu Almannavarnir Þingeyinga, ásamt öllum viðbragðsaðilum á því svæði, halda hópslysaæfingu sem fara mun fram í Aðaldal.

Hópslysaæfing í umdæmi Almannavarna Þingeyinga.
Fréttatilkynning - - Lestrar 622

Laugardaginn 3. september n.k. munu Almannavarnir Þingeyinga, ásamt öllum viðbragðsaðilum á því svæði, halda hópslysaæfingu sem fara mun fram í Aðaldal. 

Gera má ráð fyrir að allt að 100 manns taka þátt í æfingunni auk leikara sem taka að sér að leika þolendur. Þarna mun verða sviðsett stórt rútuslys með allt að 30 manns.

Auk viðbragðsaðila á svæði almannavarna Þingeyinga mun Samhæfingarmiðstöðin Skógarhlíð, LHS og Landhelgisgæsla Íslands taka þátt í æfingunni. Þennan dag má því gera ráð fyrir einhverri truflun á umferð á þessu svæði.

Æfingin er liður í innleiðingu á viðbragðsáætlun vegna hópslysa sem verið hefur í vinnslu í samstarfi við Almannavarnadeil Ríkislögreglustjóra síðastliðna mánuði.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744