Hjörleifur sigraði Framsýnarmótið

Hjörleifur Halldórsson SA vann sigur á hinu árlega Framsýnarmóti í skák sem fram fór á Húsavík um helgina.

Hjörleifur sigraði Framsýnarmótið
Íþróttir - - Lestrar 571

Kristján Ingi Smárason vann unglingaflokkinn.
Kristján Ingi Smárason vann unglingaflokkinn.

Hjörleifur Halldórsson SA vann sigur á hinu árlega Framsýnarmóti í skák sem fram fór á Húsavík um helgina. 

Hjörleifur fékk 5,5 vinninga af 7 mögulegum. Jan Olav Fivelstad TR. varð annar með 5 vinninga og Karl Egill Steingrímsson SA varð þriðji með 4,5 vinninga.

Framsýnarmótið var haldið með breyttu sniði í ár en einungis 25 mín atskákir voru á dagskrá með 3 sek/leik í aukatíma. Mótið var jafnt og mörg jafntefli litu dagsins ljós.

Sigurður Daníelsson var efstur heimamanna með 4,5 vinninga, Rúnar Ísleifsson var annar með 4 og Smári Sigurðsson og Hermann Aðalsteinsson fengu 3,5 vinninga. Kristján Ingi Smárason vann sigur í unglingaflokki með 1,5 vinninga.

Lesa má nánar um mótið hér


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744