Helgi Héðinsson sækist eftir 2-3 sæti hjá Framsókn

Helgi Héðins­son, odd­viti Skútu­staða­hrepps, til­kynnti í dag um fram­boð sitt fyrir Fram­sóknar­flokkinn í Norð­austur­kjör­dæmi.

Helgi Héðinsson sækist eftir 2-3 sæti hjá Framsókn
Fréttatilkynning - - Lestrar 249

Helgi Héðinsson.
Helgi Héðinsson.

Helgi Héðins­son, odd­viti Skútu­staða­hrepps, til­kynnti í dag um fram­boð sitt fyrir Fram­sóknar­flokkinn í Norð­austur­kjör­dæmi.

Helgi sendi frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu í dag:

Kæru félagar,

Næstkomandi haust göngum við til kosninga til Alþingis. Að vandlega athuguðu máli hef ég, í samráði við fjölskyldu og vini, ákveðið að bjóða mig fram á lista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi og sækist þar eftir 2. til 3. sæti.

Meginástæða þess að ég gef kost á mér nú er óbilandi trú mín á þeirri vegferð sem Framsóknarflokkurinn hefur verið á, sér í lagi á líðandi kjörtímabili. Vegferð samvinnu, uppbyggingar og umbóta sem knúin er áfram af fólki með hugsjónir. Mér líður eins og ég geti lagt þeim málstað lið, en ekki síður að þar sé vettvangur góðra verka sem ég vil fylgja fast eftir.

Síðustu ár hef ég unnið af krafti sem oddviti Skútustaðahrepps. Þar hef ég í góðum hópi fólks starfað eftir hugmyndafræði sem ég er ákaflega stoltur af. Hugmyndafræðin byggir á því að styrkja stoðir samfélagsins með hamingju og vellíðan fólksins að leiðarljósi. Leiðirnar að hamingjunni eru æði mismunandi og að mörgu þarf að huga sem ég tíunda ekki að fullu hér. Öll viljum við hins vegar búa við sanngjörn tækifæri til að skapa okkur lífsviðurværi. Við viljum njóta lífsgæða og lífsfyllingar. Við viljum hafa aðgengi að menntun og heilsugæslu. Við viljum hugsa vel um umhverfið okkar og njóta menningar og lista. Við viljum verja meiri tíma með vinum og fjölskyldu og við viljum að þeir sem starfa í okkar þágu geri það af heilindum og með almannahag að leiðarljósi. Við viljum fá aðstoð þegar við leitum eftir henni vegna veikinda, hvort sem þau eru líkamleg eða á andlega sviðinu. Þetta er það sem ég brenn fyrir.

Ég hef verið svo lánsamur að hafa haft tækifæri til að byggja mér traustan grunn með fjölskylduna mér við hlið. Síðustu 15 ár hef ég byggt upp rekstur á Geiteyjarströnd í Mývatnssveit í ferðaþjónustu, fiskvinnslu og við sauðfjárbúskap. Ég hef menntað mig og lokið meistaraprófi í viðskiptafræði auk MBA gráðu frá Háskóla Íslands.  Ég hef fengið tækifæri til að rækta leiðtogann á ýmsum sviðum, þar á meðal í handboltanum á Selfossi og í Mosfellsbænum, hjá Sparisjóði Suður-Þingeyinga, við kennslu í Háskóla Íslands og sem formaður veiðifélags Mývatns.

Umfram allt er ég ungur, jákvæður og bjartsýnn. Fullur af krafti til góðra verka.

Nú legg ég allt á borðið. Hugmyndafræðina, karakterinn og bakgrunninn og óska eftir stuðningi ykkar.

Ég hvet ykkur eindregið til að vera í sambandi í skilaboðum, tölvupósti eða í síma 663-1410.

Baráttukveðjur


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744