14. ágú
Heildarþekja kerfilstegunda í landi Húsavíkur nú á við sjö knattspyrnuvelliAlmennt - - Lestrar 277
Á síðustu árum hefur Náttúru-stofa Norðausturlands kortlagt útbreiðslu kerfilstegunda í landi Húsavíkur, allt frá Bakka að Saltvík.
Í frétt á heimasíðu Náttúrustofu-nnar kemur fram að í landi Húsavíkur sé bæði að finna skógar- og spánarkerfil en mun meira er þó af skógarkerfli.
Mælingar Náttúrustofunnar sýna að nú þekja kerfilstegundirnar samanlagt að lágmarki tæplega 50.000 m2 á svæðinu frá Bakka að Saltvík. Stærstu breiðuna er að finna sunnan Þorvaldsstaðaár sunnan Holtahverfis, tæplega 8.800 m2 að stærð.
Til samanburðar má geta þess að flatarmál knattspyrnuvallarins á Húsavík (gervigrasið) er um 7000 m2.