Heiðurshornið til Flosa og Unnar á Hrafnstöðum

Aðalfundur Búnaðarsambands Suður-Þingeyinga var haldinn sl. fimmtudag í Kiðagili í Bárðardal.

Flosi og Unnur með verðlaunin. Lj. BSSÞ
Flosi og Unnur með verðlaunin. Lj. BSSÞ

Aðalfundur Búnaðarsambands Suður-Þingeyinga var haldinn sl. fimmtudag í Kiðagili í Bárðardal.

Á fréttavefnum 641.is segir að 28 fulltrúar af 30 hafi mætt til fundar auk formanns og Unnsteins verkefnisstjóra Heimaslóðar.

Á fundinum ríkti frábær andi og líflegar umræður í nefndum. Fyrir fundinum lágu mörg málefni sem þurfti að leiða til lykta. Samstaða náðist um þær ákvarðanir sem teknar voru.

Á fundinum voru að venju veitt verðlaun. Hvatningaverðlaun BSSÞ í sauðfjárrækt og Heiðurshornið féllu að þessu sinni í skaut þeirra Unnar Pétursdóttur og Flosa Gunnarssonar á Hrafnstöðum.

Þá voru veitt verðlaun fyrir bestu kýr fæddar 2012 sem byggist á eigin afurðum og kúadómum. í 1. sæti var kýrin Von frá Dæli.. Í 2. sæti kýrin Klemma frá Steinkirkju og í 3. sæti var Sól frá Búvöllum.

Viðurkenningu fyrir áratugalangt og farsælt starf á vegum búnaðarsambandsins fékk Ingvar Vagnssson og þá fékk viðurkenningu Valþór Freyr Þráinsson fyrir virka innkomu að félagsmálum bænda og hvetjandi framgöngu í nýju starfi.

Fleiri myndir á 641.is


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744