H-Lax stefnir að framleiðsluaukningu úr 20 tonnum í 60 tonn

Skipulagsstofnun óskaði umsagnar Norðurþings vegna framleiðsluaukningar N-lax að Laxamýri úr 20 tonnum í 60 tonn.

Laxamýri.
Laxamýri.
Skipulagsstofnun óskaði umsagnar Norðurþings vegna framleiðsluaukningar N-lax að Laxamýri úr 20 tonnum í 60 tonn.
 
Skipulags- og umhverfisnefnd Noðrurþings tók málið fyrir í vikunni með umsagnarbeiðninni fylgdi greinargerð rekstraraðila vegna fyrirhugaðrar framleiðsluaukningar.
 
Vegna minnkandi umsvifa í ræktun laxaseiða hyggst rekstraraðili nýta núverandi mannvirki til aukningar á eldi bleikju og regnbogasilungs. Ekki er gert ráð fyrir að framleiðsluaukningin krefjist aukinnar vatnsnotkunar. Gerð er grein fyrir núverandi vatnsöflun. Aukin framleiðsla mun hafa í för með sér aukningu á lífrænum úrgangi. Gerð er grein fyrir hvernig ætlunin er að lágmarka þann lífræna úrgang sem fellur til Laxár. Sérstök grein er einnig gerð fyrir því hvernig komið verði í veg fyrir að eldisfiskur sleppi til Laxár.
 
Skipulags- og umhverfisnefnd Norðurþings telur greinargerð gera ágætlega skýra grein fyrir afleiðingum aukningar á framleiðslu og þeim mótvægisaðgerðum sem ætlað er að lágmarka hættu á slysaleppingum eldisfisks og lágmörkun lífrænnar mengunar til Laxár. Fram kemur að stöðin hefur þegar verið starfrækt í 46 ár og aldrei orðið þar meiriháttar slysaslepping. Gerð er grein fyrir vöktun mengunar í frárennslisvatni frá stöðinni.

Aðalskipulags Norðurþings 2010-2030 gerir ráð fyrir áframhaldandi fiskeldi á svæðinu og þar með tilheyrandi mannvirkjum. Ekki er í gildi deiliskipulag fyrir fiskeldið.

Skipulags- og umhverfisnefnd telur að í greinargerð sé nægileg grein gerð fyrir aukningu á framleiðslu í eldisstöðinni við Laxamýri, umhverfi hennar, mótvægisaðgerðum og vöktun. Nefndin telur ekki að aukning í framleiðslu stöðvarinnar skuli háð mati á umhverfisáhrifum að teknu tilliti til 2. viðauka laga nr. 106/2000. (nordurthing.is)

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744