Gunnlaugur Aðalbjarnarson ráðinn fjármálastjóri Norðurþings

Gunnlaugur Aðalbjarnarson hefur verið ráðinn fjármálastjóri Norðurþings en alls bárust 19 umsóknir um starfið.

Gunnlaugur Aðalbjarnarson
Gunnlaugur Aðalbjarnarson

Gunnlaugur Aðalbjarnarson hefur verið ráðinn fjármálastjóri Norðurþings en alls bárust 19 umsóknir um starfið. 

Gunnlaugur Aðalbjarnarson uppfyllir vel þær hæfniskröfur sem gerðar voru fyrir starfið.
Undanfarin ár hefur Gunnlaugur Aðalbjarnarson starfað hjá Alcoa Fjarðaráli sem sérfræðingur í fjármálateymi fyrirtækisins, sem fjármálastjóri og nú sem framkvæmdastjóri.

Áður starfaði hann sem framkvæmdastjóri Kaupfélags Héraðsbúa í sjö ár.


Gunnlaugur Aðalbjarnarson lauk Cand.Oecon prófi frá Háskóla Íslands árið 1993 og MBA námi frá Háskólanum í Reykjavík árið 2009.

Capacent hafði umsjón með úrvinnslu málsins. (nordurthing.is)


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744