Guðný með gull og brons í bogfimi

Guðný Ingibjörg Grímsdóttir Umf. Eflingu vann gullverðlaun í flokki 50 ára og eldri og bronsverðlaun í kvennaflokki á Íslandsmótinu í bogfimi innanhúss.

Guðný með gull og brons í bogfimi
Íþróttir - - Lestrar 419

Guðný með gull og silfur.
Guðný með gull og silfur.

Guðný Ingibjörg Grímsdóttir Umf. Eflingu vann gullverðlaun í flokki 50 ára og eldri og bronsverðlaun í kvennaflokki á Íslandsmótinu í bogfimi innanhúss.

Mótið fór fram í Bogfimisetrinu í Reykjavík í gær og var keppnin jöfn og þurfti bráðabana til að skera úr um úrslit.

Tómas Gunnarsson Umf. Eflingu sem vann sigur á RIG í janúar, tók einnig þátt í mótinu en tókst ekki að komast á pall að þessu sinni. Þess má geta að Guðný og Tómas eru hjón og varð sonur þeirra Jóhannes Friðrik, Íslandsmeistari í bogfimi í unglingaflokki árið 2015.

Óhætt er því að segja að bogfimi sé eitthvað sem henti vel þessari fjölskyldu frá Lautum í Reykjadal. (641.is)

Hér má skoða öll úrslit frá mótinu


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744