Grani frá Torfunesi heimsmeistari – Fysta gull Íslands á HM

Grani frá Torfunesi í Þingeyjarsveit tryggði sér í morgun heimsmeistaratitil á heimsmeistaramót Íslenska hestsins sem stendur yfir í Hollandi.

Grani frá Torfunesi.
Grani frá Torfunesi.

Grani frá Torfunesi í Þingeyjarsveit tryggði sér í morgun heimsmeistaratitil á heimsmeistaramót Íslenska hestsins sem stendur yfir í Hollandi. 

Grani fékk gullið á yfirliti í flokki 5 vetra stóðhesta, en hann hækkaði fyrir skeið í 9.5 og úr 8.31 í 8.36 í aðaleinkunn. Knapi hans er Sigurður Vignir Matthíasson. Grani er fyrsta hrossið frá ræktunarbúinu í Torfunesi sem vinnur gullverðlaun á Heimsmeistaramóti Íslenska hestsins frá upphafi.

Baldvin Kristinn Baldvinsson í Torfunesi var mjög ánægður með þennan sigur þegar 641.is náði tali af honum í morgun og bætti því við að Grani hefði náð hæstu einkunn sem hefði verið gefinn í heiminum á þessu ári í hæfileikum á kynbótasýningu í vor eða 8,88. Þá líkt og nú var það knapinn Sigurður Vignir Mattíasson sem sýndi hann þá. (641.is)

640.is óskar Torfunesbúinu til hamingju með gullið á HM.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744