Góður árangur keppenda HSÞ á unglingalandsmóti UMFÍ

Unglingalandsmót UMFÍ fór fram að venju um verslunarmannahelgina og að þessu sinni á Egilsstöðum.

Góður árangur keppenda HSÞ á unglingalandsmóti UMFÍ
Íþróttir - - Lestrar 612

Keppendur frá HSÞ.
Keppendur frá HSÞ.

Unglingalandsmót UMFÍ fór fram að venju um verslunarmanna-helgina og að þessu sinni á Egilsstöðum.

HSÞ átti 66 keppendur á mótinu og stóðu þeir sig með glæsibrag og voru svo sannarlega til fyrirmyndar.

Frá þessu segir á vef HSÞ.

HSÞ átti eitt þriggja manna lið í Boccia sem sigraði í flokki 15 ára og eldri.

Tveir keppendur voru frá HSÞ í glímu og fengu silfur og brons hvor í sínum flokki.

26 frá HSÞ tóku þátt í knattspyrnu ýmist sér í liði eða í blönduðum liðum með krökkum frá öðrum félögum. Eitt lið frá HSÞ lenti í 2. sæti í sínum flokki.

Sex keppendur frá HSÞ kepptu í stafsetningu og þrír fengu verðlaun í sínum flokki, tveir brons og einn silfur.

HSÞ átti fjóra keppendur í upplestri og tveir þeirra náðu sér í verðlaun, annar gull og hinn brons.

HSÞ átti einn keppanda í Ólympískum lyftingum sem hafnaði í 3. sæti í sínum flokki.

Átta kepptu fyrir HSÞ í fjórum liðum í strandblaki og eitt liðið fékk silfur í sínum flokki.

Fjórir frá HSÞ kepptu í sundi og fengu samtals 3 brons 1 silfur og 2 gull.

Alls kepptu 33 frá HSÞ í frjálsum íþróttum og nældu keppendur þar sér í 8 gull, 5 silfur og 9 brons. Einnig er gaman að segja frá því að 82% keppenda bættu sinn persónulega árangur á mótinu.

Einnig átti HSÞ einn keppenda í körfubolta sem keppti í liði með öðru félagi, tvo keppendur í skák og 13 keppendur í kökuskreytingum, sem er ný grein á Unglingalandsmóti UMFÍ. (641.is)

Úrslitin í heild sinni má sjá á
http://www.umfi.is/unglingalandsmot-umfi


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744