Góð gjöf sem gleður

Nýlega barst Borgarhólskóla góð gjöf frá Lionshreyfingunni á Íslandi.

Góð gjöf sem gleður
Almennt - - Lestrar 555

Borgarhólsskóli á aðventu. Lj. Gaukur
Borgarhólsskóli á aðventu. Lj. Gaukur

Nýlega barst Borgarhólskóla góð gjöf frá Lionshreyfingunni á Íslandi.

Fyrsti Lionsklúbburinn á Íslandi var stofnaður 1951 og starfa rúmlega 80 klúbbar víðsvegar um landið. Í umdæminu sem nær frá Siglufirði til Vopnafjarðar starfa níu klúbbar með yfir 200 félögum. Lionsklúbbar beita sér mest fyrir málefnum í heimabyggð og styrkja við ýmis málefni.

Fyrsta konan til að gegna starfi alþjóðaforseta Lionshreyfingarinnar er Guðrún Björt Yngvadóttir en hreyfingin starfar í meira en 200 löndum. Hún var í heimsókn í umdæminu og að því tilefni ákváðu klúbbarnir að gefa ákveðna fjárhæð á hvern nemanda í grunnskóla til bókakaupa á skólabókasöfn. Til Borgarhólsskóla renna 120 þúsund krónur sem nýtast vel og á heimasíðu skólans er Lionshreyfingunni og Lionsklúbbi Húsavíkur færða bestu þakkir.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744