Gestafjöldi Hvalasafnsins í júlí fram úr væntingum

Gestir Hvalasafnsins á Húsavík í júlí 2019 voru tæpir 10 þúsund talsins.

Gestir Hvalasafnsins á Húsavík í júlí 2019 voru tæpir 10 þúsund talsins. 

Í tilkynningu segir að það sé fjölgun upp á rúm 11% frá árinu 2018 og ívið fleiri en heimsóttu safnið í júlí 2017.

Þjóðverjar og Bandaríkjamenn eru áfram fjölmennir sem hlutfall af heildargestafjölda en þá hefur einnig verið góð aðsókn frá mörgum Mið-Evrópuríkjum, ekki síst Frakklandi. 

Þessi fjölgun gesta á háannatímanum verður að teljast afar ánægjuleg og jafnvel óvænt tíðindi fyrir Hvalasafnið. Í kjölfar tíðinda um fall WOW Air síðastliðið vor þótti líklegt að mikil fækkun yrði á komum ferðamanna til landsins og myndi það koma illilega niður á landsbyggðinni.

Það er því afar gleðilegt að upplifa vísi af því að ferðamönnum fækki ekki, enda þótt ekki sé hægt að heimfæra gestafjölda Hvalasafnsins yfir á heildarfjölda ferðamanna sem heimsækja Norðurland segir í tilkynningunni.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744