Gasmengunin á norðanverðu landinu

Undanfarna daga hefur brennisteinsmengun frá eldgosinu í Holuhrauni dreifst víða og nú síðast í nótt og í gær voru mæld há gildi á Höfn í Hornafirði og

Gasmengunin á norðanverðu landinu
Almennt - - Lestrar 125

Spákort vegna gasmengunar í dag frá vedur.is
Spákort vegna gasmengunar í dag frá vedur.is

Undanfarna daga hefur brennisteinsmengun frá eldgosinu í Holuhrauni dreifst víða og nú síðast í nótt og í gær voru mæld há gildi á Höfn í Hornafirði og nágrenni.

Í frétt á vef Almannavarna segir að nú sé vindur að snúa sér og brennisteinsmengunin á Höfn í Hornafirði gengin niður. Gasmengun frá eldgosinu í Holuhrauni er nú að berast til Húsavíkur, Mývatnssveitar og nærsveita. L

Loftgæðamælar við Mývatn eru að sýna 800 - 1200 µg/m3 eða 0,3 - 0,4 ppm og eru loftgæði því slæm þar fyrir viðkvæma. Upplýsingar um áhrif SO2 á heilsu og viðbrögð er hægt að nálgast á vefsíðu Umhverfis-stofnunar www.ust, hjá Embætti landlæknis www.landlaeknir.is og á  vefsíðu almannavarna.


Í dag og á morgun má búast við gasmengun frá gosstöðvunum verði víða á norðanverðu landinu, frá Jökuldalsheiði fyrir austan, vestur í Hvammsfjörð

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744