Gamla myndin - Ferðamenn og rækjan

Nokkuð er um liðið frá því mynd hefur komið hér inn undir liðnum Gamla myndin en hér kemur ein.

Gamla myndin - Ferðamenn og rækjan
Gamla myndin - - Lestrar 684

Héðinn Jónasson gefur ferðamönnum rækju í poka.
Héðinn Jónasson gefur ferðamönnum rækju í poka.

Nokkuð er um liðið frá því mynd hefur komið hér inn undir liðnum Gamla myndin en hér kemur ein.

Hún var tekin í júlímánuði 2004 en þá voru félagarnir Héðinn Jónasson og Hjalti Hálfdánarson, skipverjar á rækjubátnum Hinna ÞH, að landa í Húsavíkurhöfn.

Bar þá að ferðamenn og sýndu þeir rækjunni áhuga þar sem hún var ísuð í körum. Héðinn bauð þeim að bragða og hrifust þeir af rækjunni og þáðu slatta í poka.

Er þetta raunverulegt dæmi um að ferðafólkið kann að meta atvinnulífið á stöðunum sem það sækir sagði á mbl.is sem birti myndina á sínum tíma.

Héðinn gefur rækju

Beint frá bát, ferðamönnunum þótti rækjan hjá Héðni góð og þáðu slatta í poka. 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744