18. nóv
Fyrstu gestirnir boðnir velkomnir í FurulundAlmennt - - Lestrar 234
Framsýn stéttarfélag hefur tekið í notkun nýja orlofsíbúð á Akureyri sem er í Furulundi 11 E og hefur þegar verið opnað fyrir útleigu á íbúðinni til félagsmanna sem er í raðhúsi.
Á heimasíðu Framsýnar segir að fyrstu gestirnir hafi farið í íbúðina síðasta föstudag.
Það fór vel á því að það væri Svava Árnadóttir og fjölskylda frá Raufarhöfn enda Svava verið mikil baráttukona fyrir því að Framsýn eignaðist íbúð á Akureyri fyrir félagsmenn.
Við það tækifæri afhendi Ósk Helgadóttir varaformaður Framsýnar Svövu blómvönd frá félaginu.