09. nóv
Fyrsti hráefnafarmurinn til PCCAlmennt - - Lestrar 481
Í gær kom flutningaskip til Húsavíkur með fyrsta farminn af hráefnum fyrir ljósbogaofn kísilvers PCC BakkiSilicon ehf. á Bakka.
Um er að ræða 3200 tonn af kvartsi og um 700 tonn af kolum og hófst uppskipun á Bökugarðinum í gær.
Vörubílar flytja hráefnið um Húsavíkurhöfðagöng að verksmiðjusvæðinu þar sem það sett í hráefnageymslu verksmiðjunnar.
Í Morgunblaðinu í dag segir Freyr Ingólfsson, vörustjóri hráefna hjá PCC Bakkasilikon, að kolin komi frá Kólumbíu en skipið flutti þau hingað frá Rotterdam. Kvartsið kemur úr námum sem PCC á í Póllandi.
Fyrsti bílinn undir kranann.
Ekið um göngin.